Eignaskráningarkerfi með aðgengi að kauphöll
![Eignaskráningarkerfi með aðgengi að kauphöll - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_HI_200408_007.jpg?itok=eIk007KL)
Hvenær
16. nóvember 2022 15:50 til 17:00
Hvar
Háskólabíó, salur 3
Nánar
Aðgangur ókeypis
Óli Torfason meðstofnandi Mojoflower flytur fyrirlesturinn Eignaskráningarkerfi með aðgengi að kauphöll.
Mojoflower er að smíða eignaskráningarkerfi með aðgengi að kauphöll þar sem hægt verður að skrá fyrirtæki og nálgast ýmsa aðra þjónustu sem tengist web3. Fyrsta varan frá Mojoflower er hluthafaskráning fyrir fyrirtæki en með henni eignast fyrirtæki nýtt stafrænt auðkenni sem opnar dyr inn í heim web3.