Skip to main content

Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna

Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
2. mars 2023 16:30 til 18:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Tvær nýútkomnar bækur Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur verða kynntar á samkomu á Heimasvæði tungumálanna á 2. hæð í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 2. mars kl. 16:30-18:00.  

Bækurnar eru Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur í þýðingu Guðrúnar Bjarkar Guðsteinsdóttur og Hjónaband rauðu fiskanna eftir Guadalupe Nettel í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur. 

Frásagnargleði er í fyrirrúmi í Að vestan og opna sögurnar nýja og óvænta hugarheima. Í smásögum sínum leitar Guadalupe Nettel í dýraríkið til að kanna hegðun mannfólksins. 

Guðrún og Kristín segja frá verkunum lesa valda kafla. Bækurnar verða til sölu á staðnum og boðið verður upp á léttar veitingar.  

Verið öll hjartanlega velkomin. 

Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, þýðandi bókarinnar Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Kristín Guðrún Jónsdóttir, þýðandi Hjónabands rauðu fiskanna.

Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna