Blámi / Blueness
![Blámi / Blueness - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__XP20198.jpg?itok=uueC1wks)
Listasafni Svavars Guðnasonar
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, stendur að sýningunni Bláma sem opnuð verður í Listasafni Svavars Guðnasonar laugardaginn 18. febrúar kl. 13:00 - 15:30. Sýningin stendur til 15. maí.
Að opnun lokinni verður efnt til málþings í Nýheimum um sýninguna, kl. 16:00-17:30. Sérstakur gestur þingsins er Steinunn Sigurðardóttir, skáld.
Viðfangsefnið sýningarinnar eru jöklar og er hún kennd við (jökul)bláma – þennan sérstaka einkennislit skriðjökla að vetrarlagi. Höfundur hennar, Þorvarður Árnason, hefur um árabil ferðast um jökulheima Hornafjarðar, dvalið þar, notið ægi- og ævintýrafegurðar og leitast við að fanga litadýrð jökla og mikilfengleika þeirra með ljósmynda- og kvikmyndavélum.
Lýsa mætti sýningunni sem hreyfimynd sem opnast og breiðir úr sér í þrívíðu rými. Verkið byggir á hrynjandi á þremur plönum: samverkan mynda og rýmis, innri kyrrðar eða hreyfingar í myndunum sjálfum og svo framvindu og samspili efniviðarins í einstökum myndbrotum, á mismunandi sýningarflötum.
Sýningin hefur einnig ákveðnar fræðilegar hliðar; meðal annars hvernig blái liturinn tengist náttúrunni og ástríðu gagnvart henni í menningarsögulegu samhengi, hvernig sýningin tengist miðlun um loftslagsmál almennt, svo og róttæku, framvirku hlutverki safna og sýningarhalds í baráttunni við hamfararhlýnun.
Þorvarður Árnason nam kvikmyndagerð í Montréal í Kanada og hefur fengist við kvikmyndagerð og ljósmyndun um fjörutíu ára skeið, samhliða öðrum störfum. Hann hefur verið forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Hornafirði frá árinu 2006 og gegnir jafnframt stöðu rannsóknadósents í umhverfishugvísindum. Loftslagsmál hafa verið vaxandi þáttur í starfi Þorvarðar á undanförnum árum, einkum þá söfnun og miðlun upplýsinga um bráðnun hornfirska jökla. Þar hefur Þorvarður aðallega notað sjónrænar aðferðir sem byggja á þekkingu hans á landslagsljósmyndun og kvikmyndagerð. Þorvarður hlaut Menningarverðlaun Hornafjarðar árið 2018 fyrir ljósmyndir sínar af Hornafirði.
Styrktaraðilar: SASS, Háskóli Íslands, Loftslagssjóður, Landsbankinn og Origo
Sýningarstjóri / Curator: Þóranna Dögg Björnsdóttir
Höfundur / Creator: Þorvarður Árnason
Hljóðinnsetning / Sound installation: Þóranna Dögg Björnsdóttir
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, stendur að sýningunni Bláma sem opnuð verður í Listasafni Svavars Guðnasonar laugardaginn 18. febrúar kl. 13:00 - 15:30. Sýningin stendur til 15. maí.
![Blámi / Blueness](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/7aav5.jpg?itok=35etmbuQ)