Arkitektinn og hönnunarfræðingurinn Christopher Alexander
![Arkitektinn og hönnunarfræðingurinn Christopher Alexander - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__KRI8214_2.jpg?itok=AHqpqndm)
Hvenær
3. maí 2022 20:00 til 21:00
Hvar
Gróska
Nánar
Aðgangur ókeypis
Trausti Valsson, prófessor emerítus við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild HÍ heldur minningarfyrirlestur um arkitektinn og hönnunarfræðinginn Christopher Alexander.
Eftir Christopher liggur fjöldi verka og kenninga á sviði arkitektúrs, hönnunar og borgarfræði. Þetta ævistarf hans gerir hann að einum mesta hönnunarfræðing seinni tíma.
Christopher Alexander lést þann 17. mars síðastliðinn. Þegar hann lést var hann prófessor emerítus í Berkeley háskóla í Kaliforníu þar sem leiðir hans og Trausta lágu saman, og þróaðist með þeim bæði akademísk og persónuleg vinátta.
Fyrirlesturinn er skipulagður af Arkitektafélagi Íslands