Skip to main content

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
7. september 2022 16:00 til 18:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent þann 7. september í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16-18.

Þetta er í þriðja skipti sem verðlaunin verða afhent en þau eru veitt alþjóðlega þekktum höfundi fyr­ir að stuðla að end­ur­nýj­un sagna­list­ar með verk­um sín­um, en fyr­ir það hlaut Hall­dór sjálf­ur Nó­bels­verðlaun­in á sín­um tíma.

Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov veitir verðlaunum viðtöku og flytur í kjölfarið Fyrirlestur Halldórs Laxness.

Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni voru Egill Helgason fjölmiðlamaður, Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík, og Elif Shafak, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Viðburðurinn er ókeypis og opinn öllum.

Að verðlaununum standa Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn, Forlagið og Bókmenntahátíð í Reykjavík.

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent þann 7. september í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16-18.

Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness