Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?
![Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/kri_visindavaka_221001_016_0.jpg?itok=gijc2qDu)
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar miðvikudaginn 19. apríl frá klukkan 10:00 – 17:00.
Öll eru velkomin - Skráning fer fram hér!
Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og allar þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.
Ráðstefnan fer fram á íslensku en túlkun á ensku verður í boði á staðnum.
Nánari upplýsingar á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar
Dagskrá
10:00 - 10:10 Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands
10:10 - 10:20 Opnunarávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra
10:20 – 11:15 Stríð í Evrópu: Norræn samvinna í breyttu öryggisumhverfi
Jakob Hallgren, forstöðumaður sænsku alþjóðamálstofnunarinnar (UI), Kristin Haugevik, sérfræðingur hjá norsku alþjóðamálastofnuninni (NUPI), Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands (IIA), Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar (FIIA), og Ulrik Pram Gad, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS)
Málstofustjóri Auðunn Atlason, alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins
11:15 – 11:30 Kaffihlé
11:30 – 12:30 Norðurslóðir á stríðstímum: Öryggi, umhverfi og samstarf
Erindi Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands
Pallborðsumræður: Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður og fyrrverandi alþingismaður, Áslaug Ásgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Bates College í Maine og Fulbright Arctic-NSF fræðimaður við Háskóla Íslands 2022-23, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrum formaður sérfræðihóps Norðurskautsráðsins um sót og metan og Þórunn Wolfram PhD, framkvæmdastjóri Loftslagsráðs
Málstofustjóri Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun
12:30 – 13:00 Léttur hádegisverður
13:00 – 13:50 Hefur alþjóðasamfélagið brugðist flóttafólki? Leiðin að bættu alþjóðakerfi
Erindi Hugo Brady, sérfræðingur hjá International Center for Migration Policy Development (ICMPD)
Pallborðsumræður Claudia Ashanie Wilson, lögmaður og eigandi Claudia & Partners Legal Services, Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks, Jasmina Vajzovic Crnac, stjórnmálafræðingur og Nína Helgadóttir, teymisstjóri á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða kross Íslands
Málstofustjóri Svanhildur Þorvaldsdóttir, lektor í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands
13:50-14:00 Kaffihlé
14:00 –14:50 Mannréttindi, lýðræði og hlutverk Evrópuráðsins
Erindi Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Yfirmaður samvinnuverkefna hjá Evrópuráðinu
Pallborðsumræður Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar og Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Björg Thorarensen, hæstaréttardómari og Þórlindur Kjartansson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra
Málstofustjóri Ingólfur Bjarni Sigfússon, ritstjóri Kveiks, RÚV
14:50 – 15:50 Hvert stefnum við? Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða utanríkisstefnu Íslands
Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna og formaður utanríkismálanefndar, Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar, Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Málstofustjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins
15:50 – 16:00 Lokaorð Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar
16:00 – 17:00 Móttaka og uppistand með Villa Neto
Komdu og taktu þátt í umræðunni um alþjóðasamvinnu! Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norræna hússins og utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar miðvikudaginn 19. Apríl frá klukkan 10:00 – 17:00.
![Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/63jaj.jpg?itok=IeqPETsX)