Skip to main content

Alþjóðadagar 2022

Alþjóðadagar 2022 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. nóvember 2022 12:10 til 11. nóvember 2022 22:00
Hvar 
Nánar 
Aðgangur ókeypis

Alþjóðadagar eru árviss viðburður í Háskóla Íslands en markmið þeirra er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim. Á dagskrá verða kynningar á möguleikum á námi erlendis, fyrirlestrar, karaókí, ljósmyndasamkeppni á Instagram og margt fleira.

Dagskrá Alþjóðadaga

Kynningar á skiptinámi og starfsþjálfun, sem eru opnar nemendum HÍ, verða í gangi alla dagana. Þá verða möguleikar á styttri námsdvölum kynntir sem ætlað er að gera enn fleirum kleift að taka hluta af náminu erlendis. Upplýsingastofa um nám erlendis leiðir nemendur í allan sannleika um hvernig best sé að leita að námi eða starfi erlendis og möguleikar á Erasmus+ ferða- og dvalarstyrkjum utan Evrópu fyrir starfsfólk verða kynntir.

Nemendur sem nú eru í skiptinámi og starfsþjálfun taka yfir Instagram Alþjóðasviðs og veita innsýn í námsdvöl erlendis og svara spurningum áhugasamra. Þá verða erlendir nemendur sem stunda nám við HÍ með Instagram HÍ og lýsa reynslu sinni af dvölinni hér á landi.

Samhliða Alþjóðadögum fer fram rafræn ráðstefna hjá Aurora-samstarfsnetinu (Aurora Biannual) sem Háskóli Íslands tekur virkan þátt í. Hluti dagskrár verður opinn öllum, en þar má sérstaklega nefna World Café um geðheilbrigðismál þar sem nemendur og starfsfólk tíu háskóla safnast saman og ræða hvernig stuðla megi að bættu geðheilbrigði. Viðburðurinn er skipulagður af Stúdentaráði Aurora.

Nemendur geta einnig tekið þátt í ljósmyndasamkeppni á Instagram. Þema keppninnar er „hápunktur skiptinámsins“ þar sem nemendur geta sent inn myndir úr skiptináminu, bæði hér á landi sem og erlendis, og unnið til veglegra verðlauna. 

Stúdentakjallarinn verður jafnframt einn af miðpunktum Alþjóðadaga þar sem fjörið mun ráða ríkjum. Þar verður m.a. boðið upp á karókípartý og lifandi tónlist á kvöldin.

ALÞJÓÐATORGIÐ
Fimmtudaginn 10. nóvember er svo komið að hápunkti Alþjóðadaga á Háskólatorgi milli kl. 11.30-13.00. Þar geta nemendur kynnt sér skiptinám, starfsþjálfun og sumarnám, auk náms á eigin vegum.

Fyrrum og núverandi skiptinemar, fulltrúar frá sendiráðum og fjölmörgum íslenskum stofnunum og félögum verða til viðtals á torginu. Svið og deildir innan HÍ og starfsfólk Alþjóðasviðs verða einnig á staðnum og veita upplýsingar um námsdvöl erlendis.

Starfsfólk Háskólans getur kynnt sér möguleika á kennara- og starfsmannaskiptum og öðrum kostum sem bjóðast innan Erasmus+.

Yana Prydhodko, sellóleikari frá Úkraínu og meðlimur í Dnieper Symphony Orchestra, kemur fram en hún hefur verið búsett hér á landi frá því í mars vegna innrásarinnar í Úkraínu. Ingibjörg Helga Steingrímsdóttir spilar undir á píanó. 

Markmið Alþjóðadaga er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.

Alþjóðadagar 2022