Að mætast miðja vegu – Hvað gerist við samningaborðið?

Háskólatorg
Stofa 101
Algeng birtingarmynd kjarasamninga í fjölmiðlum eru myndir af fólki við fundarborð og ef vel tekst til brosandi með vöfflur í hönd að fagna undirritun samninga. En hvað er það sem gerist áður en hrært er í vöfflurnar og hvernig upplifa aðilar samninganefnda þetta ferli sem fram fer bak við luktar dyr?
Á hádegisfundi Viðskiptafræðideildar þann 15. nóvember munu Karitas Marý Bjarnadóttir ráðgjafi sjóða hjá BHM og Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari leiða okkur í allan sannleikann. Karitas Marý mun fjalla um niðurstöðu meistararannsóknar sinnar um „Upplifun kvenna sem sitja í samninganefndum kvennstéttarfélaga á kjaraviðræðum sínum“. En Aðalsteinn mun fjalla um rannsóknir sínar á líðan, viðhorfum og vinnubrögðum saminganefnda.
Fundarstjóri er Þóra Christiansen, aðjunkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Að mætast miðja vegu – Hvað gerist við samningaborðið? Hádegisviðburður Viðskiptafræðideildar 15. nóvember 2022.
