8. mars
![8. mars - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/unnamed.jpg?itok=goNOZaAW)
Hvenær
8. mars 2023 18:00 til 20:00
Hvar
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Nánar
Aðgangur ókeypis
8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Þá verður haldið málþing á vegum Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands í samstarfi við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Vigdísarstofnun. Á dagskrá málþingsins verða bæði erindi og umræður um kvennahreyfingar og -sögu á Íslandi, í Úkraínu og Kósovó.
Málþingið fer fram í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar, kl. 18.00 til 20.00.
Erindi flytja:
- Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ.
- Iryna Hordiienko, sjónvarpsframleiðandi frá Kyiv.
- Linda Gusia, lektor við félagsfræðideild háskólans í Pristína.
- Pallborðsumræður með þáttöku Ragnheiðar Krisjánsdóttur, Iriynu Hordiienko, Lindu Gusia og Oksönu Shabatura.
Tónlistaratriði.
Dagskráin fer fram á ensku. Á eftir verður boðið upp á léttar veitingar.
Aðgangur ókeypis og öll velkomin!
8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna.
![8. mars](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/633g3.jpg?itok=_66Hfauo)