Skip to main content
15. júní 2015

Sumarskóli Ohio Northern University

Í sumar, nánar tiltekið 16. júní – 17. júlí,  mun lagadeild Ohio Northern University (ONU) standa fyrir sumarskóla á Íslandi fyrir nemendur sína. Meistaranemum við Lagadeild Háskóla Íslands er einnig boðið að taka þátt í skólanum.

Að þessu sinni er boðið upp á þrjú námskeið: Comparative Constitutional Law, International Litigation in American Courts, sem prófessorar við ONU kenna og The Law of the Sea sem Pétur Dam Leifsson, dósent við Lagadeild Háskóla Íslands mun kenna.  Lagadeildir skólanna tveggja hafa átt með sér samstarf í yfir 50 ár og er þessi sumarskóli hluti af því.

Upplýsingar um sumarskólann á heimasíðu ONU.

Ohio Northern University