Skip to main content
4. júní 2015

Nýjar hjólagrindur á háskólasvæðinu

""

Nú er verið að setja upp nýjar hjólagrindur víðs vegar um háskólasvæðið. Hjólreiðafólk fagnar því að gömlum „gjarðarbönum“ fækkar og í staðinn koma grindur sem fara vel með hjólin.

Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi framkvæmda- og tæknisviðs og Stúdentaráðs. Næsti áfangi er að setja upp nokkur yfirbyggð hjólaskýli til að bæta enn frekar aðstöðu hjólreiðafólks og ýta undir vistvænar samgöngur. 

""
""