Skip to main content
2. júní 2015

Fimmhundruðasti doktorinn brautskráður frá HÍ

Fimmhundruðasti doktorinn brautskráður frá HÍ - á vefsíðu Háskóla Íslands

Axel Hall varð í dag fimmhundruðasti doktorsneminn til þess að brautskrást frá Háskóla Íslands frá stofnun skólans.

Axel varði doktorsritgerð sína við Hagfræðideild og bar hún yfirskriftina Skattar og atvinna á Norðurlöndum. Fyrstur manna til þess að leggja fram ritgerð við skólann var Páll Eggert Ólason (árið 1919) og Selma Jónsdóttir varð fyrst kvenna til þess að leggja fram rit til varnar (1960).

Frá árinu 1919 hafa alls 286 karlar (57%) og 214 konur (43%) lokið doktorsprófi frá skólanum. Á síðustu 20 árum hefur doktorsnámið eflst og dafnað við Háskóla Íslands en í stefnumörkun skólans árið 2006 var lögð mikil áhersla á eflingu rannsókna og doktorsnáms. Efling doktorsnámsins hefur án efa átt ríkan þátt í að styrkja stöðu Háskóla Íslands sem viðurkennds alþjóðlegs rannsóknarháskóla, en þess má geta að um þriðjungur þeirra sem stunda nú doktorsnám við skólann koma erlendis frá og sama hlutfall birtist í hópi þeirra sem brautskráðst hafa frá skólanum undanfarin ár.

Hér má skoða nánari tölfræði um doktorsnám við Háskóla Íslands.

Axel Hall varð í dag fimmhundraðasti doktorsneminn til þess að brautskrást frá Háskóla Íslands frá stofnun skólans. Hér er hann við vörnina í Hátíðasal skólans.
Kynjahlutfall brautskráðra doktora frá 1919.
Axel Hall varð í dag fimmhundraðasti doktorsneminn til þess að brautskrást frá Háskóla Íslands frá stofnun skólans. Hér er hann við vörnina í Hátíðasal skólans.
Kynjahlutfall brautskráðra doktora frá 1919.