Kaffibolli og Kínaspjall með Kristínu, fyrrum sendiherra í Kína

Veröld - Hús Vigdísar
Stofu 007
Kristín A. Árnadóttir, fyrrum sendiherra Íslands í Kína, segir frá nýafstaðinni páskaferð sinni til Kína sem fararstjóri ferðaskrifstofunnar Úrvals Útsýnar. Með áratugalanga og djúpa reynslu af kínversku samfélagi veitir Kristín einstakt sjónarhorn á land og þjóð – bæði frá sjónarhóli ferðalangsins og diplómatsins.
Fyrirlesturinn fer fram í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar fimmtudaginn 16. apríl kl.17:30. Léttar veitingar – verið velkomin.
Um fyrirlesarann
Kristín deilir með okkur frásögnum úr ferðinni og sýnir myndir sem gefa innsýn í menningu og daglegt líf í Kína.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla sem vilja kynnast Kína á lifandi og persónulegan hátt.
Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking.
Hún þekkir því Kína afar vel, bæði söguna, stjórnmálin og daglegt líf. Hún hefur víðtæka alþjóðlega reynslu, m.a. í samskiptum og menningartengdu starfi.
Viðburðurinn er hluti af fyrirlestraröðinni Snarl og spjall um Kína sem Kínversk-íslenska menningarfélagið stendur að í samvinnu við Konfúsíusarstofnunina Norðurljós. Fyrirlestraröðin skapar vettvang til að spjalla saman og kynnast fjölbreyttum málefnum tengdum Kína.
Kristín A. Árnadóttir.
