Sálfræðiráðgjöf háskólanema líka fyrir börn stúdenta og starfsfólks HÍ
Sálfræðiþjónusta við börn háskólanema og starfsfólks HÍ hefur nú verið aukin talsvert hjá Sálfræðiráðgjöf háskólanema. Þar veita MS-nemar í klínískri barnasálfræði þjónustu undir handleiðslu dr. Dagmarar Kr. Hannesdóttur, lektors við Sálfræðideild og sérfræðings í klínískri barnasálfræði, en hún státar af 20 ára starfsreynslu á þessu sviði. Í boði er ráðgjöf og bein meðferð fyrir foreldra og börn og unglinga á aldrinum 3-18 ára við eftirfarandi vanda:
- Kvíða, fælni og áráttu-þráhyggju
- Depurð og slakri sjálfsmynd
- ADHD og erfiðri hegðun
- Samskiptaþjálfun
- Svefnvanda
Nemendur greiða aðeins 1.500 fyrir hvern tíma sem er umtalsvert lægra en á hinum almenna markaði.
Ef annar en ofangreindur vandi er til staðar er hægt að hafa samband við Sálfræðiráðgjöfina og þá verður metið hvort hægt sé að veita aðstoð við honum. Athugið að ekki fer fram formlegt greiningarferli á vegum Sálfræðiþjónustunni varðandi ADHD, einhverfu, námserfiðleika eða þroskafrávik.