Höfum við gleymt feðrunum? Föðurleggur og orsakir heilsu og sjúkdóma
![Höfum við gleymt feðrunum? Föðurleggur og orsakir heilsu og sjúkdóma - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_haskolinn_190731_003_kynningarefni.jpg?itok=ld8gdzjQ)
Rafrænn fundur
Fyrirlesari: Cecilie Svanes, Háskólinn í Bergen, fimmtudaginn 4. maí 2023, kl. 08:00 GMT/10.00 CET
Um fyrirlesturinn
Geta markviss inngrip í einni kynslóð bætt heilsu á skilvirkan hátt í mörgum kynslóðum sem á eftir koma? Nýjar rannsóknir benda til þess að heilsa og sjúkdómar geti átt upptök sín í útsetningu mörgum árum fyrir getnað og að verðandi feður geti verið jafn mikilvægir og barnshafandi mæður fyrir heilsu afkvæma. Hugsanlega gætu umhverfisþættir eða vannæring – jafnframt gagnlegum inngripum – ekki aðeins haft áhrif á einstaklinginn sem verður fyrir þessari útsetningu, heldur einnig á þroska sæðis og eggja og þar með afkvæmi sem fæðast úr þessum frumum?
Um Nordic Global Health Talks
Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði kl. 08:00 GMT/10:00 CET getur þú farið inn á rafræna málstofu sem er skipulögð af 12 norrænum háskólum þar sem hnattræn heilsa er til umræðu. Málstofurnar eru á Zoom og aðgangur er ókeypis og frjáls öllum sem hafa áhuga á fræðigreininni og rannsóknum á því sviði við norræna háskóla, en forskráning er nauðsynleg.
Hér má finna frekari upplýsingar um fyrirlestraröðina:
https://globalhealth.ku.dk/nordic-talks
Fyrirlesari: Cecilie Svanes, Háskólinn í Bergen
![Höfum við gleymt feðrunum? Föðurleggur og orsakir heilsu og sjúkdóma](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/5qavj.jpg?itok=lgMt-4Oo)