Doktorsvörn í Matvæla og næringarfræðideild
Aðalbygging
Hátíðarsalur
Þriðjudaginn 18. apríl 2023 ver Hang Thi Nguyen doktorsritgerð sína í matvælafræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Ný prótein til manneldis úr hliðarstraumum fiskvinnslu og vannýttum fisktegundum. Novel protein sources from fish processing side streams and underutilised species for human consumption.
Andmælendur eru dr. Heidi Nielsen, rannsóknarstjóri Nofima í Tromsö, Noregi og dr. Ida-Johanne Jensen, lektor við NTNU/UiT í Þrándheimi, Noregi.
Umsjónarkennari var María Guðjónsdóttir og leiðbeinandi Sigurjón Arason, prófessor. Auk þeirra sátu í doktorsnefnd Dr. Tumi Tómasson, prófessor og fyrrum skólastjóri UNESCO GRÓ-Fisheries Training Programme, auk Dr. Huynh Nguyen Duy Bao og Dr. Huong Thi Thu Dang frá Nha Trang University.
Dr. Ingibjörg Gunnarsdóttir, prófessor við Matvæla- og næringarfræðideildar, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 13.00.
Doktorsvörn Hang Thi Nguyen við Matvæla- og næringarfræðideild
Hátíðarsalur Háskóla Íslands 18. apríl kl. 13
Ritgerðin ber heitið: Ný prótein til manneldis úr hliðarstraumum fiskvinnslu og vannýttum fisktegundum. Novel protein sources from fish processing side streams and underutilised species for human consumption.