Skip to main content

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
19. apríl 2023 10:00 til 17:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar miðvikudaginn 19. apríl frá klukkan 10:00 – 17:00.

Öll eru velkomin - Skráning fer fram hér!

Í ár eins og síðastliðin ár bjóðum við til samtals þar sem við kryfjum alþjóðamálin og allar þær áskoranir sem við okkur blasa í alþjóðasamfélaginu í dag.

Ráðstefnan fer fram á íslensku en túlkun á ensku verður í boði á staðnum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Alþjóðamálastofnunar

Dagskrá

10:00 - 10:10 Setning ráðstefnu
Sabina Westerholm, forstjóri Norræna hússins
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands

10:10 - 10:20 Opnunarávarp
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra

10:20 – 11:15 Stríð í Evrópu: Norræn samvinna í breyttu öryggisumhverfi

Jakob Hallgren, forstöðumaður sænsku alþjóðamálstofnunarinnar (UI), Kristin Haugevik, sérfræðingur hjá norsku alþjóðamálastofnuninni (NUPI), Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands (IIA), Samu Paukkunen, aðstoðarforstöðumaður finnsku alþjóðamálastofnunarinnar (FIIA), og Ulrik Pram Gad, sérfræðingur hjá dönsku alþjóðamálastofnuninni (DIIS)

Málstofustjóri Auðunn Atlason, alþjóðafulltrúi forsætisráðuneytisins

11:15 – 11:30 Kaffihlé

11:30 – 12:30 Norðurslóðir á stríðstímum: Öryggi, umhverfi og samstarf

Erindi Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Háskóla Íslands

Pallborðsumræður: Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður og fyrrverandi alþingismaður, Áslaug Ásgeirsdóttir, prófessor í stjórnmálafræði við Bates College í Maine og Fulbright Arctic-NSF fræðimaður við Háskóla Íslands 2022-23, Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og fyrrum formaður sérfræðihóps Norðurskautsráðsins um sót og metan og Þórunn Wolfram PhD, framkvæmdastjóri Loftslagsráðs

Málstofustjóri Þóra Arnórsdóttir, forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun

12:30 – 13:00 Léttur hádegisverður

13:00 – 13:50 Hefur alþjóðasamfélagið brugðist flóttafólki? Leiðin að bættu alþjóðakerfi

Erindi Hugo Brady, sérfræðingur hjá International Center for Migration Policy Development (ICMPD)

Pallborðsumræður Claudia Ashanie Wilson, lögmaður og eigandi Claudia & Partners Legal Services, Eva Bjarnadóttir, sérfræðingur í málefnum flóttafólks, Jasmina Vajzovic Crnac, stjórnmálafræðingur og Nína Helgadóttir, teymisstjóri á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða kross Íslands

Málstofustjóri Svanhildur Þorvaldsdóttir, lektor í stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands

13:50-14:00 Kaffihlé

14:00 –14:50 Mannréttindi, lýðræði og hlutverk Evrópuráðsins

Erindi Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Yfirmaður samvinnuverkefna hjá Evrópuráðinu

Pallborðsumræður Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar og Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, Björg Thorarensen, hæstaréttardómari og Þórlindur Kjartansson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra

Málstofustjóri Ingólfur Bjarni Sigfússon, ritstjóri Kveiks, RÚV

14:50 – 15:50 Hvert stefnum við? Fulltrúar stjórnmálaflokka ræða utanríkisstefnu Íslands

Bjarni Jónsson, þingmaður Vinstri grænna og formaður utanríkismálanefndar, Gísli Rafn Ólafsson, þingmaður Pírata, Jakob Frímann Magnússon, þingmaður Flokks fólksins, Jóhann Friðrik Friðriksson, þingmaður Framsóknarflokksins, Jón Steindór Valdimarsson, lögfræðingur og varaþingmaður Viðreisnar, Logi Einarsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins

Málstofustjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins

15:50 – 16:00 Lokaorð Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði og stjórnarformaður Alþjóðamálastofnunar

16:00 – 17:00 Móttaka og uppistand með Villa Neto

Komdu og taktu þátt í umræðunni um alþjóðasamvinnu! Árleg ráðstefna Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, Norræna hússins og utanríkisráðuneytisins í samstarfi við Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála verður haldin í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar miðvikudaginn 19. Apríl frá klukkan 10:00 – 17:00.

Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?