Með fróðleik í fararnesti: Fuglaskoðunarferð í Grafarvogi
![Með fróðleik í fararnesti: Fuglaskoðunarferð í Grafarvogi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/spoi_litill.jpg?itok=1vBt4bMZ)
Grafarvogur – Við kirkjuna
Þegar farfuglarnir flykkjast heim að fögru landi ísa er vorið komið og sumarið á næsta leiti með sínum fagra fuglasöng. Sölvi Rúnar Vignisson, doktorsnemi og kennari við HÍ, mun leiða fuglaskoðunarferð ásamt fleiri fuglafræðingum og Jóni Erni Guðbjartssyni vísindamiðlara HÍ. Farið verður um fjöruna í Grafarvogi mánudaginn 1. maí. Farfuglar safnast gjarnan saman í stórum hópum í Grafarvogi á vorin og því verður vafalítið margt að sjá. Gott er að koma með sjónauka og gjarnan fuglabækur. Gangan tekur 2 klst. Fuglafræðingarnir mæta líka með magnaða sjónauka.
Sölvi Rúnar hefur leitt þetta verkefni í ófá skipti ásamt fuglafræðingunum Gunnari Þór Hallgrímssyni og Tómasi Grétari Gunnarssyni úr HÍ en sá síðartaldi er einmitt einn leiðbeinenda Sölva í doktorsverkefninu. Doktorsrannsókn Sölva Rúnars er helguð tjaldinum – þeim fagra fugli og vafalítið ber hann fyrir augu í Grafarvogi en hluti af stofninum heldur til hér allt árið.
Fuglagangan er hluti af samstarfsverkefni Háskóla Íslands og Ferðafélags barnanna: Með fróðleik í fararnesti sem hefur staðið yfir frá aldarafmæli Háskóla Íslands árið 2011.
Ókeypis er í gönguna eins og allar aðrar í röðinni um Fróðleik með fararnesti. Ekkert að panta, bara mæta!
Mæting er kl. 12 við Grafarvogskirkju – hægt er að leggja bílum við kirkjuna.
Þegar farfuglarnir flykkjast heim að fögru landi ísa er vorið komið og sumarið á næsta leiti með sínum fagra fuglasöng. Sölvi Rúnar Vignisson, doktorsnemi og kennari við HÍ, mun leiða fuglaskoðunarferð ásamt fleiri fuglafræðingum og Jóni Erni Guðbjartssyni vísindamiðlara HÍ. Farið verður um fjöruna í Grafarvogi mánudaginn 1. maí.
![Með fróðleik í fararnesti: Fuglaskoðunarferð í Grafarvogi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/br9vb.jpg?itok=r9adU5hU)