GPMLS öndvegisfyrirlestur - Prófessor Kornelia Polyak, MD PhD
![GPMLS öndvegisfyrirlestur - Prófessor Kornelia Polyak, MD PhD - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_200507_016.jpg?itok=0IgWwnm7)
Fróði fyrirlestrarsalur, Sturlugata 8, Hús íslenskrar erfðagreiningar
Prófessor Kornelia Polyak, MD, PhD mun halda fyrirlestur undir yfirskriftinni Breast cancer prevention via targeting progenitors í öndvegisfyrirlestraröð GPMLS í Fróða fyrirlestrarsal þann 17. apríl kl. 11:00-12:00.
Kornelia Polyak, er prófessor í læknisfræði við Dana-Farber Cancer Institute, Harvard Medical School og er alþjóðlega viðurkenndur leiðtogi á sviði brjóstakrabbameinsrannsókna. Rannsóknarstofa Dr. Polyak framkvæmir sameindagreiningar á brjóstakrabbameini í mönnum með það að markmiði að bæta klíníska meðferð brjóstakrabbameinssjúklinga. Rannsóknarstofa hennar hefur lagt mikið á sig til að þróa nýjar leiðir til að rannsaka æxli í heild sinni og beita þverfaglegum aðferðum. Rannsóknarstofa Dr. Polyak verið í fararbroddi í rannsóknum sem greina einangraða frumuhópa úr eðlilegum og æxlismyndandi brjóstvef úr mönnum með erfðafræðilegum aðferðum bæði í vef og á eins frumu stigi og beita stærðfræðilegum og vistfræðilegum líkönum til að bæta skilning á þróun brjóstaæxla. Henni hefur einnig tekist vel við klíníska þýðingu á niðurstöðum sínum, þar á meðal prófun á verkun JAK2 og BET brómólénahemla til að meðhöndla þrefalt neikvætt brjóstakrabbamein í klínískum rannsóknum. Dr. Polyak hefur hlotið fjölda verðlauna, þar á meðal Paul Marks verðlaunin fyrir krabbameinsrannsóknir árið 2011, AACR verðlaun framúrskarandi vísindamanna 2012 fyrir brjóstakrabbameinsrannsóknir, framúrskarandi vísindamaður NCI árið 2015 og Rosalind Franklin verðlaunin árið 2016.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Prófessor Kornelia Polyak, MD PhD
![GPMLS öndvegisfyrirlestur - Prófessor Kornelia Polyak, MD PhD](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/brd43.jpg?itok=zWj8Ezyu)