Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi
![Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/asia_0.jpg?itok=cP8yuSpg)
Veröld - Hús Vigdísar
Stofa 007
Óformlegar umræður með Wei Lin og Elizabeth Lay um ólík sjónarhorn þeirra á að búa á Íslandi sem kínversk/íslenskur tónlistarmaður og kínversk-amerískur menntafræðingur, sérstaklega í kjölfar opinberrar gagnrýni á uppsetningu Íslensku óperunnar á Madame Butterfly. Viðbrögð frá asísku samfélagi, listasamfélagi og almenningi hafa afhjúpað erfitt og flókið samband milli viðurkenningar Asíubúa á Íslandi og (skorts á) fulltrúum þeirra í listum. Þær munu deila reynslu sinni og hugmyndum um hvernig íslenskar stofnanir geta skapað betra umhverfi fyrir alla til að viðurkenna fjölbreytileika íbúa þess.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku, í stofu 007 í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudag 13. apríl kl.17:30.
Kínversk-íslenska menningarfélagið og Konfúsíusarstofnunin Norðurljós standa fyrir viðburðinum. Nánari upplýsingar um Wei Lin og Elizabeth Lay má finna á vef Kínversk-íslenska menningarfélagsins.
Boðið er upp á léttar veitingar og hvatt til umræðna, verið öll velkomin.
Wei Lin og Elizabeth Lay.
![Hin asíska ímyndun í íslensku samfélagi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/2jqgr.jpg?itok=qlKJnYFh)