Skip to main content

Alþjóðadagur hamingju 2023

Alþjóðadagur hamingju 2023 - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
20. mars 2023 13:00 til 16:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Í tilefni af alþjóða hamingjudeginum þann 20. mars nk. fer fram málþingið Hamingja og sjálfbær velsæld í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 13-16. Málþingið er samstarfsverkefni embættis landlæknis, forsætisráðuneytisins, Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntunar Háskóla Íslands.

Streymi frá viðburðinum

Dagskrá málþingsins er fjölbreytt þar sem fulltrúar samstarfsaðila munu taka til máls ásamt Vanessu King, sérfræðings í jákvæðri sálfræði hjá Action for Happiness. Þá verður skýrsla um hamingju þjóða í heimnum „World Happiness Report 2023“ einnig kynnt en skýrslan kemur út árlega þennan dag. Þar er að finna niðurstöður könnunar á hamingju meðal þjóða heimsins, þar sem Ísland hefur verið meðal efstu landa sl. ár.

Dagskrá

  • 13:00 Ávarp
  • 13:15 Hamingja og velsæld
    Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri hjá embætti landlæknis og kennslustjóri diplómanáms í jákvæðri sálfræði við Endurmenntun HÍ.
  • 13:35 Alþjóðlegi hamingjudagurinn og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna
    Vala Karen Viðarsdóttir framkvæmdarstjóri Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
  • 13:45 Action for Happiness at work and in the community
    Vanessa King, Positive Psychology expert at Action for Happiness
  • 14:30 Kaffihlé
  • 14:50 Hamingjan á hjólastígum höfuðborgarinnar
    Gunnar Hersveinn, rithöfundur og heimspekingur
  • 15:10 Sjálfbært Ísland
    Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtogi á sviði sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu
  • 15:30 Pallborðsumræður
  • 16:00 Málþingslok

Málþingið er opið öllum á meðan húsrúm leyfir og verður einnig í streymi. Nánari upplýsingar er að finna í viðburði á Facebook.

Í tilefni af alþjóða hamingjudeginum þann 20. mars nk. fer fram málþingið Hamingja og sjálfbær velsæld í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 13-16. Málþingið er samstarfsverkefni embættis landlæknis, forsætisráðuneytisins, Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi og Endurmenntunar Háskóla Íslands.

Alþjóðadagur hamingju 2023