KOMPÁS Þekkingarsamfélagið kynnir Hugtakasafn
![KOMPÁS Þekkingarsamfélagið kynnir Hugtakasafn - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_1920__KRI9877xx.jpg?itok=4pYL2V86)
Hvenær
16. mars 2023 13:00 til 14:00
Hvar
Gróska
Fenjamýri á 1. hæð
Nánar
Öll velkomin
KOMPÁS Þekkingarsamfélagið býður til opins viðburðar þann 16. mars kl. 13:00-14:00 í fundarsalnum Fenjamýri á 1. hæð Grósku.
Kynnt verður veflausn Hugtakasafnsins sem er samstarfsverkefni fjölda aðila innan sem utan Þekkingarsamfélagsins. Hugtakasafnið er spunnið út frá ferðaþjónustunni en nær jafnframt til þarfa sveitarfélaga, þjónustuaðila, verslunar og þjónustu, auk verndunar íslenskrar tungu. Vefurinn heldur utan um mörg hundruð hugtök og skilgreiningar þeirra. Hugtakasafnið vex og dafnar enn frekar með virku samstarfi og hvetjum við alla til að kynna sér afrakstur vinnunnar og framþróun.
- Fram koma:
Kristín Sif Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Atlantik - Gunnar Þór Jóhannesson, prófessor í Land- og ferðamálafræði HÍ
- Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans
- Sindri Másson og Stefán Orri Eyþórsson, umsjón hugbúnaðar
Fundarstjóri: Björgvin Filippusson, stofnandi KOMPÁS Þekkingarsamfélagsins