Skip to main content

8. mars

8. mars   - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. mars 2023 18:00 til 20:00
Hvar 

Veröld - Hús Vigdísar

Auðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna. Þá verður haldið málþing á vegum Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands í samstarfi við RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum og Vigdísarstofnun. Á dagskrá málþingsins verða bæði erindi og umræður um kvennahreyfingar og -sögu á Íslandi, í Úkraínu og Kósovó.

Málþingið fer fram í Auðarsal í Veröld – húsi Vigdísar, kl. 18.00 til 20.00.

Erindi flytja:

  • Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við HÍ.
  • Iryna Hordiienko, sjónvarpsframleiðandi frá Kyiv.
  • Linda Gusia, lektor við félagsfræðideild háskólans í Pristína.
  • Pallborðsumræður með þáttöku Ragnheiðar Krisjánsdóttur, Iriynu Hordiienko, Lindu Gusia og Oksönu Shabatura.

Tónlistaratriði. 

Dagskráin fer fram á ensku. Á eftir verður boðið upp á léttar veitingar.

Aðgangur ókeypis og öll velkomin!

 

 

8. mars er alþjóðlegur baráttudagur kvenna.

8. mars