Grænir Dagar 2023 í Háskóla Íslands verða haldnir 1-3 mars
![Grænir Dagar 2023 í Háskóla Íslands verða haldnir 1-3 mars - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/green_days_banner_030323.jpg?itok=SPQCabtb)
Háskólasvæðið
Grænir dagar eru haldnir árlega í Háskóla Íslands með það að markmiði að varpa ljósi á og upplýsa nemendur, sem og almenning um ýmis umhverfismál. Gaia, nemendafélag mastersnema í umhverfis- og auðlindafræði sér um að halda Græna daga ásamt nemendaráðinu. Grænir Dagar fara fram 1. til 3. mars í HÍ.
Þemað í ár eru sjálfbærar samgöngur. Ýmsir gestafyrirlesarar munu koma allstaðar að og bjóða uppá fjölbreyttar vinnustofur, fyrirlestra og kynningar með innsýn og lausnir á sjálfbærum samgöngum. Á Grænum Dögum verður m.a. pallborð samgöngu verkfræðinga, loftslagsmengun á Íslandi, kynning frá Strætó, kynning á Arctic expeditions, og margt fleira.
Á dögunum verður einnig 50% afsláttarsvæði fyrir Hopp hjól í boði!
(Allir atburðir Grænna Daga munu fara fram á staðnum)
Nánari upplýsingar fyrir hvern viðburð eru aðgengilegar á Facebook
Miðvikudagur 1 mars
- 15:00: Strætó: Nýjar Breytingar og Næturstrætó - Aðalbygging A-050
- 16:00: Að Takast á Við Loftslagsbreytingar - Litla Torg
- 17:30: Framtíð Samgöngu verkfræðis - Veröld VHV-008
Fimmtudagur 2 mars
- 15:00: Borgarlínan - Veröld VHV-008
- 15:30: Undirbúningur hægrar eldunnar - Eiríksbúð
- 16:00: Loftmengun í Reykjavík - Askja, N-129
- 19:00: Kynningar á hægri eldun & Kvöldmatur - Eiríksbúð
- 20:00: Bíó: Black Trail - Eiríksbúð
Föstudagur 3 mars
- 15:00: Samgöngur á heimsskautasvæðum - Askja, N-129
- 17:00: 84 daga ganga í kringum Ísland - Askja, N-128
Nánari upplýsingar fyrir hvern viðburð eru aðgengilegar á Facebook.
Grænir dagar eru haldnir árlega í Háskóla Íslands með það að markmiði að varpa ljósi á og upplýsa nemendur, sem og almenning um ýmis umhverfismál.
![Grænir Dagar 2023 í Háskóla Íslands verða haldnir 1-3 mars](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/pbb54.jpg?itok=bDxVe7Z1)