Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna
![Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/uglalitil.jpg?itok=9gYD-wzk)
Veröld - Hús Vigdísar
Tvær nýútkomnar bækur Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur verða kynntar á samkomu á Heimasvæði tungumálanna á 2. hæð í Veröld - húsi Vigdísar, fimmtudaginn 2. mars kl. 16:30-18:00.
Bækurnar eru Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur í þýðingu Guðrúnar Bjarkar Guðsteinsdóttur og Hjónaband rauðu fiskanna eftir Guadalupe Nettel í þýðingu Kristínar Guðrúnar Jónsdóttur.
Frásagnargleði er í fyrirrúmi í Að vestan og opna sögurnar nýja og óvænta hugarheima. Í smásögum sínum leitar Guadalupe Nettel í dýraríkið til að kanna hegðun mannfólksins.
Guðrún og Kristín segja frá verkunum lesa valda kafla. Bækurnar verða til sölu á staðnum og boðið verður upp á léttar veitingar.
Verið öll hjartanlega velkomin.
Guðrún Björk Guðsteinsdóttir, þýðandi bókarinnar Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Kristín Guðrún Jónsdóttir, þýðandi Hjónabands rauðu fiskanna.
![Bókakynning: Að vestan. Íslensk-kanadískar smásögur og Hjónaband rauðu fiskanna](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/xjj9z.jpg?itok=BikW6Vhf)