Málþing: Refugees from the Middle East and their languages in Iceland
![Málþing: Refugees from the Middle East and their languages in Iceland - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_%20askja_byggingar_200512_005.jpg?itok=z1eyglHF)
Veröld - Hús Vigdísar
Auðarsalur
Hver er reynsla flóttafólks á Íslandi þegar kemur að tungumálum? Á hvaða hátt er stutt við tungumál flóttamanna? Hverjar eru helstu áskoranirnar, af hverju getum við lært og hvað má gera betur?
Í tengslum við Alþjóðlega móðurmálsdaginn efnir Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningar til málþingsins „Refugees from the Middle East and their languages in Iceland: experiences, challenges, and prospects“ þar sem reynsla flóttamanna af tungumálalandslagi Íslands verður rædd, meðal annars aðgengi að túlkaþjónustu og móðurmálskennslu. Þrátt fyrir almenna viðurkenningu á því að frelsi til að tjá okkur á eigin tungumáli sé einn grundvallarréttur einstaklinga, þá fylgja því fjölmargar áskoranir, ekki síst í löndum eins og Íslandi með takmarkaða reynslu af móttöku flóttafólks frá Mið-Austurlöndum. Með málstofunni vill Vigdísarstofnun skapa vettvang þar sem raddir og reynsla flóttafólks á Íslandi af tungumálum og tungumálaréttindum fær að heyrast.
Fyrirlesarar á málþinginu eru Erna Huld Ibrahimsdóttir og Qusay Odeh, sem hafa langa reynslu af túlkun, og Þórir Jónsson Hraundal, lektor og námsbrautarformaður Mið-Austurlandfræða við Háskóla Íslands.
Málþingið fer fram í Auðarsal, Veröld - húsi Vigdísar þann 28. febrúar og hefst kl. 17:00.
Málþingið "Refugees from the Middle East and their languages in Iceland" verður haldið í Veröld - húsi Vigdísar þann 28. febrúar
![Málþing: Refugees from the Middle East and their languages in Iceland](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wppp9.jpg?itok=B6ME3BG6)