Innsetningarathöfn - Þóroddur Bjarnason
![Innsetningarathöfn - Þóroddur Bjarnason - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_listasafn_200504_018.jpg?itok=eJ8ChqVy)
Lögberg
stofa 101
Þóroddur Bjarnason hefur hlotið framgang í stöðu prófessors í félagsfræði við Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild.
Í tilefni af því verður haldin innsetningarathöfn þann 23. mars undir yfirskriftinni Aftur til framtíðar.
Þóroddur Bjarnason er prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands. Hann lauk bakkalárprófi í félagsfræði frá Háskóla Íslands (1991), meistaraprófi í gagnagreiningu félagsvísinda frá University of Essex (1995) og doktorsprófi í félagsfræði frá University of Notre Dame í Bandaríkjunum (2000).
Hann var ráðinn í stöðu lektors við State University of New York í Albany 2000 og stöðu prófessors við Háskólann á Akureyri 2004. Hann fékk framgang í stöðu prófessors við Háskóla Íslands við ráðningu í janúar 2022.
Boðið verður upp á léttar veitingar að athöfn lokinni.
Prófessor Þóroddur Bjarnason
![Innsetningarathöfn - Þóroddur Bjarnason](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4xx29.jpg?itok=za9J-YIQ)