Kínversk læknisfræði
![Kínversk læknisfræði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_leikskoli_200526_018.jpg?itok=7B1dsXgF)
Veröld - Hús Vigdísar
VHV-007
Minghai Hu, nálastungulæknir, mun fjalla um kínverska læknisfræði. Hann er menntaður frá Tianjin University of Traditional Chinese Medicine og kenndi þar sem dósent. Samhliða kennslu starfaði hann á spítala sem nálastungulæknir. Hérlendis starfaði hann hjá Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði og er núna með stofu í Reykjavík.
Viðburðurinn er á vegum Kínversk-íslenska menningarfélagsins og Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljósa, sem býður einnig upp á ókeypis veitingar. Hann verður haldinn fimmtudaginn 16. febrúar 2023 kl.17:30 í stofu VHV-007, kjallara Veraldar, húsi Vigdísar, að Brynjólfsgötu 1, Reykjavík. Næg frí bílastæði eru við bygginguna.
Áður en fyrirlesturinn hefst verður boðið upp á veitingar og geta gestir spjallað saman og notið þeirra en síðan tekur fyrirlesturinn við sem áætlað er að taki um 30- 45 mínútur. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Minghai Hu.
![Kínversk læknisfræði](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/z99ga.jpg?itok=Sl9z4FC-)