Skip to main content

Una Torfa á Háskólatónleikum

Una Torfa á Háskólatónleikum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. febrúar 2023 12:15 til 13:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Fjara

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskólatónleikaröðinni verður ýtt úr vör á þessu ári með glæsibrag þegar tónlistarkonan Una Torfa kemur fram í Fjöru, sal á Menntavísindasviði skólans í Stakkahlíð, miðvikudaginn 15. febrúar kl. 12.15. Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Una var óskoruð spútniklistakona síðasta árs, heillaði heila þjóð með sérdeilis frábærri frumraun sinni, Flækt og týnd og einmana. Þar steig hún fram með nokkuð afgerandi hætti; heildartónninn hreinn og heiðarlegur, lögin björt, fögur og hrein en líka gáskafull og grallarakennd. Skemmtilegir en um leið stingandi textar um raunir og sigra hversdagsins og á tónleikum verður þetta allt sprelllifandi og dýpra. Við hlökkum til!

Tónleikarnir fara fram miðvikudaginn 15. febrúar og hefjast leikar kl. 12.15. Staður er Fjara, Stakkahlíð, hvar Menntavísindasvið HÍ er með höfuðstöðvar. Tónleikunum verður einnig streymt og hægt verður að horfa á þá síðar í upptökuformi. Hvort sem þú ert í borginni, úti á landi eða úti í heimi getur þú notið hinna fögru tóna Háskólatónleikaraðarinnar og upplifað stemninguna í skólanum. Öll velkomin á staðinn og aðgangur gjaldfrjáls.

Slóð á streymið má finna hér

Háskólatónleikaröðin hóf göngu sína með nýjum áherslum haustið 2020 og hafa listamenn af alls kyns toga troðið upp. Tónleikunum hefur öllum verið streymt með glæsibrag og má nálgast upptökur hér.

Umsjónarmaður tónleikaraðarinnar og listrænn stjórnandi er dr. Arnar Eggert Thoroddsen. Segist hann styðjast við slagorðið „Háskóli fyrir alla - Tónlist fyrir alla“ og er myndast við að endurspegla það í dagskránni.

Háskólatónleikaröðinni verður ýtt úr vör á þessu ári með glæsibrag þegar tónlistarkonan Una Torfa kemu fram í Fjöru, sal á Menntavísindasviði skólans í Stakkahlíð, miðvikudaginn 15. febrúar kl. 12.15.

Una Torfa á Háskólatónleikum