Hugvísindaþing - fyrri dagur
![Hugvísindaþing - fyrri dagur - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/hugvisthing2023.jpg?itok=ZqcSuOe5)
Hugvísindaþing 2023 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 10. og 11. mars. Á Hugvísindaþingi er borið fram það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætluðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Meðal þess sem fjallað verður um í ár er bókmenntagagnrýni, táknmál, Austurland, guðsmyndir, grýla, hetjur, ríkisvaldið, orðaforði, rímur og stafrænar skemmtanir. Sjá nánar á vef þingsins.
Ólöf Garðarsdóttir, forseti Hugvísindasviðs, setur þingið í Hátíðasal í Aðalbyggingu föstudaginn 10. mars kl. 12. Í kjölfarið flytur Vilhjálmur Árnason, prófessor emeritus í heimspeki, hátíðarfyrirlestur.
Málstofur fara fram í Árnagarði, Lögbergi og Odda og verður dagskráin birt á síðu þingsins innan skamms. Aðgangur er öllum heimill og ókeypis. Verið velkomin á Hugvísindaþing!
Hugvísindaþing 2023 verður haldið í Háskóla Íslands dagana 10. og 11. mars.
![Hugvísindaþing - fyrri dagur](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/8pa7r.jpg?itok=ypWZFTkS)