GPMLS öndvegisfyrirlestraröð - Professor Reuben S. Harris
![GPMLS öndvegisfyrirlestraröð - Professor Reuben S. Harris - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_mvs_190813_002.jpg?itok=PRtcSTRu)
Fróði fyrirlestrarsalur (Sturlugata 8, hús íslenskrar erfðagreiningar)
Dr. Reuben S. Harris er prófessor og forseti lífefnafræði- og byggingarlíffræðideildar Háskólans í Texas við heilbrigðisvísindamiðstöðina í San Antonio og prófessor og stjórnarmaður við Howard Hughes sjúkrastofnunina. Hann mun halda fyrirlestur undir yfirskriftinni „Grunn- og þýðingarrannsóknir á næststærstu uppsprettu stökkbreytinga í krabbameini“ (titill á ensku: "Basic and translational studies on the second largest source of mutation in cancer") í öndvegisfyrirlestraröð GPMLS.
Rannsóknarstofa Harris notar fjölda líkanakerfa og tilraunaaðferða til að skilja hvernig DNA stökkbreytandi ensím (APOBEC) veita ónæmi gegn veirusýkingum, en stuðla í mörgum tilfellum einnig að æxlisþróun. Annað markmið rannsóknarhóps Dr. Harris er að nýta þessar grundvallaruppgötvanir til þróunar nýrra meðferða gegn veirum og krabbameini. Í þessum fyrirlestri mun hann einbeita sér að APOBEC og krabbameini. Fyrirlesturinn fer fram á ensku.
Professor Rueben S. Harris
![GPMLS öndvegisfyrirlestraröð - Professor Reuben S. Harris](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wpxav.jpg?itok=9q0WDYYy)