Útgáfa haustheftis tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla
Oddi
101
Desemberhefti tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla verður gefið út í vefútgáfu 15. desember 2022.
Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 2. tbl. 18. árg. tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla (www.irpa.is) verður haldið samdægurs, fimmtudaginn 15. desember, kl. 16.30, í Odda 101, í HÍ.
Við opnunina kynna þær Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði við HÍ og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, grein þeirra og Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur, prófessors í félagsfræði við HÍ: Að sníða verkfærið að veruleikanum eða veruleikann að verkfærinu? Um jafnlaunastaðal og afnám kynbundinna launa.
Fyrirspurnir og umræður verða að loknu erindi þeirra og síðan verður boðið upp á léttar veitingar á annarri hæð Odda.
Öll velkomin.
Útgáfuboð og fyrirlestur í tilefni af útkomu 2. tbl. 18. árg. tímaritsins Stjórnmál & stjórnsýsla (www.irpa.is) verður haldið samdægurs, fimmtudaginn 15. desember, kl. 16.30, í Odda 101, í HÍ. Við opnunina kynna þær Ragna Kemp Haraldsdóttir, lektor í upplýsingafræði við HÍ og Guðbjörg Andrea Jónsdóttir, forstöðumaður Félagsvísindastofnunar, grein þeirra og Guðbjargar Lindu Rafnsdóttur, prófessors í félagsfræði við HÍ, sem er meðal efnis í tímaritinu.