Skip to main content

Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar

Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. nóvember 2022 12:00 til 13:15
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðarsalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins 

Bakslag hefur orðið í framþróun mannréttinda í Evrópu og aukning á hatursorðræðu, hatursglæpum og upplýsingaóreiðu hefur átt sér stað á undanförnum árum. Þetta kallar á að aukin áhersla sé lögð á að koma í veg fyrir mismunun gagnvart viðkvæmum hópum til að tryggja lýðræðisleg evrópsk samfélög án aðgreiningar. Algildi mannréttinda er í auknum mæli dregin í efa sem stofnar þeim meginreglum og stöðlum sem sameinað hafa Evrópu undanfarna sjö áratugi í hættu. 

Árás Rússa á Úkraínu sýnir að stríð og grimmd tilheyra ekki aðeins fjarlægri fortíð Evrópu. Nú sem aldrei fyrr er mikilvægt að ríki Evrópu standi vörð um lýðræðismenningu okkar, stöðugleika og öryggi. Ísland hefur nú tekið við formennsku í Evrópuráðinu og því er við hæfi að skoða hvernig Evrópuráðið hefur stuðlað að vernd  mannréttinda og lýðræðis í Evrópu. Mikilvægt er að efla Evrópuráðið svo evrópsk ríki séu tilbúin til að takast á við þær margvíslegu áskoranir sem framundan eru. 

Dagskrá 

Opnunarorð Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands 

Opnunarerindi Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra 

Aðalávarp Marija Pejčinović Burić, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins 

Panelumræður 

Bjarni Jónsson,  formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins og formaður utanríkismálanefndar, Brynhildur Heiðar - og Ómarsdóttir, sérlegur ráðgjafi kvennréttindafélags Íslands, Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakan 78 og Kári Hólmar Ragnarsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands og meðlimur í stjórn Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands  

Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir, ritstjóri Kveiks

Fundurinn fer fram á ensku, öll velkomin

Frekari upplýsingar um formennsku Íslands í Evrópuráðinu hér  www.government.is/coe

 

Opinn fundur á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins 

Mannréttindavarsla á viðsjárverðum tímum: Hlutverk Evrópuráðsins til framtíðar