Anna Helga Jónsdóttir: Tengslamyndun COVID-19 nemenda og brotthvarf nemenda úr námi
![Anna Helga Jónsdóttir: Tengslamyndun COVID-19 nemenda og brotthvarf nemenda úr námi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_althodadagar_191106_030.jpg?itok=f8STXaQ6)
Hvenær
18. nóvember 2022 10:30 til 11:30
Hvar
Endurmenntun við Dunhaga
Naustið
Nánar
Aðgangur ókeypis
Tengslanetagögnum var safnað í tveimur nemendahópum, nemendum sem hófu háskólanám árið 2017 og nemendum sem byrjuðu í námi árið 2020 þegar heimsfaraldur geisaði. Gögnunum var aflað með sérsmíðuðu tóli í Uglu. Niðurstöður sýna að nemendur í 2020 hópnum tilgreindu færri tengsl við upphaf náms og kynntust færri samnemendum sínum á fyrsta ári í náminu.
Brotthvarf nemenda úr námi verður einnig skoðað í erindinu og verður kastljósinu beint að nemendum í stærðfræðinámi.
Fyrirlesturinn er fluttur í Málstofu í stærðfræði. Þau sem hefðu áhuga á að fá tilkynningar um fyrirlestra í Málstofu í stærðfræði geta haft samband við Rögnvald Möller, roggi@hi.is. Stefnt er að vikulegum fyrirlestrum meðan kennslan stendur yfir..