Skip to main content

Staða ráðskvenna í sveit

Staða ráðskvenna í sveit - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
15. nóvember 2022 16:00 til 17:00
Hvar 

Árnagarður

Stofa 311

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Dalrún Kaldakvísl, doktor í sagnfræði, flytur fyrirlestur í Málstofu í félags- og hagsögu sem hún nefnir „Staða ráðskvenna í sveit á síðari hluta 20. aldar.“

Á síðari hluta 20. aldar gegndu ráðskonur mikilvægu hlutverki á íslenskum sveitabæjum. Í málstofunni fjallar Dalrún Kaldakvísl um félagslega stöðu ráðskvenna í sveit á síðari hluta 20. aldar. Þar beinir hún sjónum sínum annars vegar að stöðu þeirra kvenna áður en þær réðu sig til ráðskonustarfa og hins vegar að stöðu ráðskvenna í sjálfri vistinni. Samhliða kemur Dalrún inn á hvaða aðstæður til sveita skópu þörf fyrir ráðskonur á sveitaheimilum á þeim tíma. Erindið byggir á doktorsrannsókn Dalrúnar sem hún varði á síðastliðnu sumri.

Fyrirlesturinn fer fram í stofu 311 í Árnagarði, þriðjudaginn 15. nóvember kl. 16:00-17:00.

Hægt er að nálgast dagskrá Málstofu í félags- og hagsögu á haustmisseri vef Sagnfræðistofnunar. Málstofan er umræðuvettvangur fyrir hvers konar efni í félags- og hagsögu á hvaða tímabili sem er. Hún er með óformlegu sniði þar sem fólki gefst tækifæri til að kynna rannsóknir sínar, verk í vinnslu jafnt sem útgefin verk, prófa nýjar hugmyndir og kenningar eða taka fyrri rannsóknir til gagnrýnnar skoðunar. Á eftir framsögum er gefinn góður tími til fyrirspurna og almennra umræðna. Málstofan er á vegum kennara í sagnfræði og viðskiptafræði í Háskóla Íslands og umsjón hafa sagnfræðiprófessorarnir Erla Hulda Halldórsdóttir, Guðmundur Jónsson og Ragnheiður Kristjánsdóttir og Sveinn Agnarsson, prófessor í viðskiptafræði.

Dalrún Kaldakvísl.

Staða ráðskvenna í sveit á síðari hluta 20. aldar