Skip to main content

Bandarísku þingkosningarnar 2022 - eftirleikur, kannanir og pólarísering

Bandarísku þingkosningarnar 2022 - eftirleikur, kannanir og pólarísering - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
9. nóvember 2022 12:00 til 13:00
Hvar 

Askja

N-132

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Félag stjórnmálafræðinga og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála munu standa fyrir hádegisfundi um bandaríku þingkosningarnar 2022 miðvikudaginn 9. nóvember kl.12:00-13:00 í stofunni N-132 í Öskju, Háskóla Íslands.

Þriðjudaginn 8. nóvember voru haldnar þingkosningar í Bandaríkjunum þar sem kosið var til neðri deildar þingsins og þriðjungs efri deildar. Samkvæmt tölum nú í morgunsárið er mjótt á munum. Á þessum hádegisfundi munu Silja Bára Ómarsdóttir prófessor og Hafsteinn Einarsson aðjúnkt, bæði við Stjórnmálafræðideild HÍ, fjalla um niðurstöður kosninganna, kosningabaráttuna, hvort að kannanir hafi gefið rétta mynd af fylgi flokkanna og þeim áskorunum sem bandaríska þingið stendur frammi fyrir á næstu misserum.

Sjá nánar um fundinn á facebook viðburði hér.

Fundinum verður jafnframt streymt á facebook síðu Félags stjórnmálafræðinga.

Fundurinn er opinn öllum, aðgangur er ókeypis og fundurinn fer fram á íslensku.