Orkuskipti á óvissutímum
![Orkuskipti á óvissutímum - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_groska_200904_002.jpg?itok=5vV4xau-)
Háskólatorg
101
Dr. Lawrence Jones, yfirmaður alþjóðamála hjá Edison Electric Institute, heldur erindi um þátt trausts í orkuskiptum á opnum hádegisfyrirlestri Viðskiptafræðideildar, þriðjudaginn 18. október kl. 12-13 í stofu HT-101.
Orkuskipti eru flókið ferli sem krefjast trausts á mörgum ólíkum stigum. Nýjar rannsóknir benda þó til þess að traust sé í sögulegu lágmarki víðsvegar í heiminum. Hvers vegna treystir fólk stjórnvöldum, fyrirtækjum, fjölmiðlum, nágrönnum og vinum minna en áður? Þetta mikla vantraust hindrar okkur í að taka mikilvæg skref þegar kemur að loftslagsbreytingum, ójöfnuði, efnahagsmálum, orkumálum og vatns- og fæðuöryggi. Hvernig getum við yfirstigið þessar hindranir og byggt upp nægilegt traust til að taka þessi nauðsynlegu skref?
Rektor Háskóla Íslands opnar fundinn kl. 12:00 í stofu HT-101. Öll velkomin meðan húsrúm leyfir.
Dr. Lawrence Jones, yfirmaður alþjóðamála hjá Edison Electric Institute.
![Orkuskipti á óvissutímum](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/d9ajj.jpg?itok=gGnvdA9b)