Bálkakeðjur á miðvikudögum - Rafmyntir – vaxandi eignaflokkur

Háskólabíó, salur 3
Daði Kristjánsson flytur fyrirlesturinn Rafmyntir – vaxandi eignaflokkur
Daði er framkvæmdastjóri Visku Digital Assets sem kom á fót fyrsta fjárfestingarsjóðnum á Íslandi sem fjárfestir í rafmyntum.
Daði hefur yfir 15 ára reynslu af störfum á fjármálamarkaði og hefur lengst af starfað á sviði markaðsviðskipta, nú síðast hjá Fossum fjárfestingarbanka.
Daði er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði og M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.
Fyrirlesturinn er hluti af fyrirlestrarröðinni Bálkakeðjur á miðvikudögum. Markmið fyrirlestraraðarinnar er að kafa ofan í alla anga rafmynta, frá undirliggjandi tækni til nýtingar og fjárfestinga.
Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku Digital Assets flytur fyrirlesturinn Rafmyntir – vaxandi eignaflokkur
