Hvað er að gera hlutina vel? - Málþing um fagmennsku
![Hvað er að gera hlutina vel? - Málþing um fagmennsku - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/sidfraedist04112022.png?itok=EQNHm4pj)
Lögberg
Stofa 101
Siðfræðistofnun Háskóla Íslands efnir til málþings um fagmennsku föstudaginn 4. nóvember. Hvað helgar fagleg viðmið á ólíkum sviðum og hver er þýðing þeirra? Á málþinginu verður leitast við að varpa ljósi á fagmennskuhugtakið auk þess sem rýnt verður í birtingarmyndir og viðmið um fagmennsku á sviðum lögmennsku, fjölmiðlunar og heilbrigðisþjónustu.
Málþingið fer fram í stofu 101 í Lögbergi, föstudaginn 4. nóvember, kl. 14:00 - 17:00.
Dagskrá:
14:00 Málþingið setur Vilhjálmur Árnason, stjórnarformaður Siðfræðistofnunar.
14:10 Fagmennska, siðferði og lýðræði. Sigurður Kristinsson, prófessor í heimspeki við Háskólann á Akureyri.
14:40 Að rækta með sér fagmennsku: sjónarmið heilbrigðisstarfsmanns. María K. Jónsdóttir, prófessor við Sálfræðideild Háskólans í Reykjavík.
15:00 Hver er þessi bonus pater? Berglind Svavarsdóttir, lögmaður og fyrrv. formaður Lögmannafélags Íslands.
15:20 Kaffihlé
15:40 Að sinna sínu: hugleiðing um fréttir og fagmennsku. Róbert H. Haraldsson, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands.
16:00 Pallborðsumræður. Sigurður Kristinsson, Berglind Svavarsdóttir, Róbert Haraldsson, Þórður Snær Júlíusson og Ástríður Stefánssdóttir. Umræðum stýrir Vilhjálmur Árnason.
17:00 Málþingslok
Fundarstjóri: Páll Rafnar Þorsteinsson.