Börnin og bókmenntirnar - málþing haldið í tilefni af degi þýðenda og túlka
Veröld - Hús Vigdísar
2. hæð
Í tilefni af alþjóðlegum degi þýðenda og túlka, 30. september 2022 býður Bandalag þýðenda og túlka til málþings í í samstarfi við Þýðingasetur HÍ og Vígdísarstofnun - alþjóðlega miðstöð tungumála og menningar. Viðburðurinn fer fram í Veröld - húsi Vigdísar, 2. hæð.
Á dagskrá:
Helga Birgisdóttir, aðjúnkt við HÍ og bókmenntafræðingur:
Barnið í vestrænum skilningi
Magnea J. Matthíasdóttir, þýðandi og þýðingafræðingur:
Hvað ungur nemur, gamall temur
Sverrir Norland, rithöfundur, þýðandi og bókaútgefandi:
(óstaðfest)
Pétur Gunnarsson, þýðandi og rithöfundur:
Að lesa eða ekki lesa … Um blendið viðhorf Rousseau til bóka
Málþingið hefst kl. 18:00 og er aðgangur ókeypis. Boðið upp á léttar veitingar.
Öll hjartanlega velkomin!
Börnin og bókmenntirnar - málþing haldið í tilefni af degi þýðenda og túlka