Skip to main content

Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli

Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
17. september 2022 13:00 til 13:40
Hvar 

Norræna húsið

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Eru náttúra og borgarumhverfi andstæður eða er náttúra í borg lykillinn að betra lífi? Hvað eru blágrænar ofanvatnslausnir?

Verið velkomin á viðburðinn "Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli", sem haldinn verður á lýðræðishátíðinni Fundi fólksins í Norræna húsinu laugardaginn 17. september n.k. kl. 13:00-13:40. Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samstarfi við Norræna húsið.

Borgarumhverfi og innviðir borga eru viðkvæm fyrir öfgum í veðurfari, svo sem flóðum og fellibyljum. Um leið hefur borgarumhverfi gjarnan neikvæð umhverfisáhrif sem sjá má til dæmis sjá á „hitaeyjum“ í borgum, aukinni mengun og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Hvernig getum við dregið úr þessum neikvæðu áhrifum og skapað borgarrými sem vinnur með náttúrunni en ekki á móti henni? Það verður sífellt ljósara að náttúrumiðaðar lausnir eru lykilatriði í því að draga úr og aðlagast loftslagsbreytingum. 

Erindi:
Halldóra Hreggviðsdóttir, Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Alta. Blágrænir innviðir í bæjum - Gróðurríkari byggð.

Hrund Ólöf Andradóttir, Prófessor í umhverfisverkfræði
Blágrænir innviðir og sjálfbærar borgir.

Pallborð:

Björn Hauksson, fulltrúi Náttúruvina Reykjavíkur, nýrra hagsmunasamtaka grænna svæða í Reykjavík

Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri vatnamála hjá Umhverfisstofnun

Þórólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru og garða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar

Katrín Oddsdóttir stýrir umræðum.

Málþingið er hluti af viðburðaröðinni „Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir og áhrif þeirra í víðara samhengi.“

Í ár eru náttúrumiðaðar lausnir þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og markmiðið með viðburðaröðinni er að varpa ljósi á náttúrumiðaðar lausnar og innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum. 

Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi, fylgist með á  https://vimeo.com/event/2428243

Eru náttúra og borgarumhverfi andstæður eða er náttúra í borg lykillinn að betra lífi? Hvað eru blágrænar ofanvatnslausnir? Verið velkomin á viðburðinn "Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli", sem haldinn verður á lýðræðishátíðinni Fundi fólksins í Norræna húsinu laugardaginn 17. september n.k. kl. 13:00-13:40. Málþingið er haldið af Stofnun Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við Háskóla Íslands í samstarfi við Norræna húsið. Borgarumhverfi og innviðir borga eru viðkvæm fyrir öfgum í veðurfari, svo sem flóðum og fellibyljum. Um leið hefur borgarumhverfi gjarnan neikvæð umhverfisáhrif sem sjá má til dæmis sjá á „hitaeyjum“ í borgum, aukinni mengun og tapi á líffræðilegri fjölbreytni. Hvernig getum við dregið úr þessum neikvæðu áhrifum og skapað borgarrými sem vinnur með náttúrunni en ekki á móti henni? Það verður sífellt ljósara að náttúrumiðaðar lausnir eru lykilatriði í því að draga úr og aðlagast loftslagsbreytingum.  Erindi:Halldóra Hreggviðsdóttir, Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Alta. Blágrænir innviðir í bæjum - Gróðurríkari byggð. Hrund Ólöf Andradóttir, Prófessor í umhverfisverkfræðiBlágrænir innviðir og sjálfbærar borgir. Pallborð: Björn Hauksson, fulltrúi Náttúruvina Reykjavíkur, nýrra hagsmunasamtaka grænna svæða í Reykjavík Marianne Jensdóttir Fjeld, verkefnastjóri vatnamála hjá Umhverfisstofnun Þórólfur Jónsson, deildarstjóri náttúru og garða á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar Katrín Oddsdóttir stýrir umræðum. Málþingið er hluti af viðburðaröðinni „Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir og áhrif þeirra í víðara samhengi.“ Í ár eru náttúrumiðaðar lausnir þema umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og markmiðið með viðburðaröðinni er að varpa ljósi á náttúrumiðaðar lausnar og innleiðingu þeirra á Norðurlöndunum.  Einnig verður hægt að fylgjast með beinu streymi, fylgist með https://vimeo.com/event/2428243

Í liði með náttúrunni: Náttúrumiðaðar lausnir í þéttbýli