Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness
![Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_sigrunarsjodur.jpg?itok=8YyXJHjN)
Aðalbygging
Hátíðasalur
Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent þann 7. september í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16-18.
Þetta er í þriðja skipti sem verðlaunin verða afhent en þau eru veitt alþjóðlega þekktum höfundi fyrir að stuðla að endurnýjun sagnalistar með verkum sínum, en fyrir það hlaut Halldór sjálfur Nóbelsverðlaunin á sínum tíma.
Úkraínski rithöfundurinn Andrej Kúrkov veitir verðlaunum viðtöku og flytur í kjölfarið Fyrirlestur Halldórs Laxness.
Í valnefnd verðlaunanna að þessu sinni voru Egill Helgason fjölmiðlamaður, Stella Soffía Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar í Reykjavík, og Elif Shafak, handhafi Alþjóðlegra bókmenntaverðlauna Halldórs Laxness 2021.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku. Viðburðurinn er ókeypis og opinn öllum.
Að verðlaununum standa Forsætisráðuneytið, Menningar- og viðskiptaráðuneytið, Íslandsstofa, Gljúfrasteinn, Forlagið og Bókmenntahátíð í Reykjavík.
Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness verða afhent þann 7. september í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 16-18.
![Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/xqv7g.jpg?itok=4eyR2rKZ)