Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og viðburður um náttúrumiðaðar lausnir
![Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og viðburður um náttúrumiðaðar lausnir - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_kri_stjornmalafraedi_200515_009.jpg?itok=IL3NwzUQ)
Viðburður um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum:
Tilkynnt um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 og málþing um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum
Fimmtudaginn 1. september kl. 14 í beinu streymi frá Norræna húsinu í Færeyjum. Hlekkur á streymið: https://vimeo.com/event/2358324
Þann 1. september næstkomandi verða tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 kunngjörðar. Þema umhverfisverðlaunanna í ár er náttúrumiðaðar lausnir sem svar við hinum stóru umhverfisáskorunum sem við stöndum nú frammi fyrir. Tilnefningarnar verða tilkynntar af Magnus Rasmussen, umhverfis- og atvinnuvegaráðherra Færeyja.
Í kjölfar tilnefninganna verður málþing um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum og hvernig þær tengjast loftslagsmálum, líffræðilegri fjölbreytni og vellíðan fólks. Málþingið er hluti af viðburðaröð Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og Norræna hússins er nefnist „Í liði með náttúrunni“.
Dagskrá viðburðar:
Fyrri hluti:
Tilkynnt um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs: Magnus Rasmussen, umhverfis- og atvinnuvegaráðherra Færeyja
Seinni hluti:
Kynning á viðburði: Myrra Leifsdóttir, viðburðastjóri Stofnunar Sæmundar fróða og Silja Elvarsdóttir, skrifstofustjóri umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Aðalerindi: Jóna Ólavsdóttir, verkefnisstjóri verkefnis norrænu ráðherranefndarinnar um náttúrumiðaðar lausnir.
Pallborðsumræður:
- Kolbrún í Haraldsstovu, verkefnisstjóri Lendibati og yfirmaður grasafræðideildar þjóðminjasafns Færeyja
- Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun
- Páll á Reynatúgvu, færeyskur lögþingsmaður fyrir Tjóðveldi
- Andrea Vang, nemi og meðlimur í norrænu tengslaneti ungs fólks um líffræðilega fjölbreytni (Nordic Youth Biodiversity Network)
- Leonard Sandin, rannsóknarstjóri norsku vatnarannsóknarstofnunarinnar (Norsk institutt for vannforskning)
Fundarstjóri: Katrin Petersen, fjölmiðlakona
Viðburður um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum:
Tilkynnt um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 og málþing um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum
Fimmtudaginn 1. september kl. 14 í beinu streymi frá Norræna húsinu í Færeyjum. Hlekkur á streymið: https://vimeo.com/event/2358324
Þann 1. september næstkomandi verða tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs 2022 kunngjörðar. Þema umhverfisverðlaunanna í ár er náttúrumiðaðar lausnir sem svar við hinum stóru umhverfisáskorunum sem við stöndum nú frammi fyrir. Tilnefningarnar verða tilkynntar af Magnus Rasmussen, umhverfis- og atvinnuvegaráðherra Færeyja.
Í kjölfar tilnefninganna verður málþing um náttúrumiðaðar lausnir á Norðurlöndunum og hvernig þær tengjast loftslagsmálum, líffræðilegri fjölbreytni og vellíðan fólks. Málþingið er hluti af viðburðaröð Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun og Norræna hússins er nefnist „Í liði með náttúrunni“.
Dagskrá viðburðar:
Fyrri hluti:
Tilkynnt um tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs: Magnus Rasmussen, umhverfis- og atvinnuvegaráðherra Færeyja
Seinni hluti:
Kynning á viðburði: Myrra Leifsdóttir, viðburðastjóri Stofnunar Sæmundar fróða og Silja Elvarsdóttir, skrifstofustjóri umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Aðalerindi: Jóna Ólavsdóttir, verkefnisstjóri verkefnis norrænu ráðherranefndarinnar um náttúrumiðaðar lausnir.
Pallborðsumræður:
Kolbrún í Haraldsstovu, verkefnisstjóri Lendibati og yfirmaður grasafræðideildar þjóðminjasafns Færeyja
Hafdís Hanna Ægisdóttir, forstöðumaður Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun
Páll á Reynatúgvu, færeyskur lögþingsmaður fyrir Tjóðveldi
Andrea Vang, nemi og meðlimur í norrænu tengslaneti ungs fólks um líffræðilega fjölbreytni (Nordic Youth Biodiversity Network)
Leonard Sandin, rannsóknarstjóri norsku vatnarannsóknarstofnunarinnar (Norsk institutt for vannforskning)
Fundarstjóri: Katrin Petersen, fjölmiðlakona
![Tilnefningar til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs og viðburður um náttúrumiðaðar lausnir](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/9p4bd.jpg?itok=9W57qSbn)