Móttaka nýnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði
![Móttaka nýnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_byggingar_190812_005.jpg?itok=4kT7Hx8I)
Háskólabíó og fleiri staðir
Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ býður öllum nýnemum sviðsins til móttöku, fræðslu og skemmtunar fimmtudaginn 18. og föstudaginn 19. ágúst.
Dagskrá móttökunnar hefst með sameiginlegri dagskrá í stóra salnum í Háskólabíó á fimmtudeginum kl. 12.30.
Þegar þeirri dagskrá lýkur fara nýnemar ásamt kennurum í sína námsbraut og mun dagskrá mótast af hverri námsbraut fyrir sig.
Á föstudeginum verður boðið upp á fræðslu fyrir nýnema með yfirskriftinni "Velgengni í námi". Boðið verður upp á grillaðar pylsur í hádegishléinu og eftir það munu nemendafélög innan VoN stýra dagskránni.
Nánari dagskrá:
18. ágúst - Fimmtudagur
12.30 - 13.00 - Móttaka í Stóra sal Háskólabíó (Allir nýnemar)
- Jón Atli Benediktsson, Rektor HÍ
- Sigurður Magnús Garðarsson, forseti VoN
- Brynhildur R. Þorbjarnardóttir, forseti sviðsráðs VoN og fulltrúi í Stúdentaráði, og Telma Rut Bjargardóttir, fulltrúi í sviðsráði VoN
13.00 – 16.00 - Námsbrautir VoN
Nemendur fylgja kennurum í sínar námsbrautir og dagskrá heldur áfram (Athugið að tímalengd er breytileg eftir námsbrautum)
19. ágúst - Föstudagur
10.00 – 11.30 Velgengni í námi (Allir nýnemar)
Staðsetning: Háskólabíó, salur 1 og salur 2
- Lýdía Kristín Sigurðardóttir, Náms- og starfsráðgjöf HÍ
- Nemendaþjónusta VoN
- Brynjar Þór Elvarsson, Alþjóðasvið HÍ
- Nemendafélög VoN hitta nýnema
11.30 – 12.30 Hádegismatur fyrir nýnema og starfsfólk VoN
Staðsetning:
Túnið sunnan við VR-I (ef veður leyfir*)
*Ef veður verður óhagstætt verður hádegismatur staðsettur í Öskju, Sturlugötu 7.
12.30 – 14.30 Nemendafélög VoN fylgja nýnemum í skemmtilegri dagskrá.
Móttaka nýnnema VoN
![Móttaka nýnema á Verkfræði- og náttúruvísindasviði](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/5xqda.jpg?itok=r99JqPTb)