Frændafundur 11
![Frændafundur 11 - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_listasafn_200504_018.jpg?itok=eJ8ChqVy)
Oddi
2. hæð
Íslensk-færeyska ráðstefnan Frændafundur verður haldin dagana 16.-18. ágúst næstkomandi í Háskóla Íslands, nánar tiltekið á 2. hæð Odda.
Ráðstefnan er samstarfsvettvangur Háskóla Íslands og Fróðskaparseturs Færeyja og fer nú fram í 11. sinn. Á ráðstefnunni er fjallað um margvísleg viðfangsefni sem tengjast Íslandi eða Færeyjum en markmiðið er að leiða saman íslenska og færeyska vísindamenn á ólíkum fræðasviðum og skapa ný tækifæri til rannsóknasamstarfs milli þessara frændþjóða.
Ráðstefna, sem fer fram á ensku, er þverfræðileg og í ár verður boðið upp á erindi af afar fjölbreyttum fræðasviðum innan beggja stofnana.
Ráðstefnan er opin öllum áhugasömum þeim að kostnaðarlausu og ekki þarf að skrá sig.
Íslensk-færeyska ráðstefnan Frændafundur verður haldin dagana 16.-18. ágúst næstkomandi í Háskóla Íslands, nánar tiltekið á 2. hæð Odda.
![Frændafundur 11](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/b9rda.jpg?itok=kvGCGSbK)