Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir
![Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/kri_althodadagar_181025_041_1.jpg?itok=T7irmlv_)
Kynningardagar fyrir alþjóðlega nýnema eru haldnir í upphafi hvers misseris. Markmið daganna er að kynna þjónustu Háskólans og styðja nemendur í að aðlagast nýrri menningu og kynnast öðrum nemendum.
Á dagskrá eru spennandi námskeið, skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið, kynningar fræðasviða og viðburðir á vegum Stúdentaráðs.
Náms- og starfsráðgjöf býður upp á námskeiðið The Keys to Success at the University of Iceland þar sem nemendur fá leiðbeiningar um hvernig vænlegast sé að ná árangri í námi við Háskólann og njóta dvalarinnar á Íslandi. Þá geta áhugasamir nemendur tekið þátt í örnámskeiði í íslensku, Icelandic in 90 minutes.
Á dagskrá eru spennandi námskeið, skipulagðar gönguferðir um háskólasvæðið, kynningar fræðasviða og viðburðir á vegum Stúdentaráðs.
![Alþjóðlegir nýnemar boðnir velkomnir](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/733b8.jpg?itok=fiOEGCFC)