Vorbrautskráning Háskóla Íslands
![Vorbrautskráning Háskóla Íslands - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__XP39971.jpg?itok=sD18btLI)
Frjálsíþróttahöllin í Laugardal
Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal (nýju Laugardalshöllinni) laugardaginn 25. júní.
Brautskráningunni verður skipt í tvær athafnir líkt og undanfarin ár og að þessu sinni er hún opin bæði brautskráningarkandídötum og gestum þeirra (tveir gestir að hámarki með hverjum kandídat). Athöfnunum verður einnig streymt í beinni (sjá hér að neðan).
Fyrri athöfnin verður kl. 10 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Félagsvísindasvið og Verkfræði- og náttúruvísindasvið við skírteinum sínum.
Bein útsending frá fyrri brautskráningarathöfn
Síðari athöfnin hefst kl. 13.30 en þá taka nemendur í grunn- og framhaldsnámi við Heilbrigðisvísindasvið, Hugvísindasvið og Menntavísindasvið við skírteinum sínum.
Bein útsending frá seinni brautskráningarathöfn
Brautskráningarkandídatar fá sent bréf með nánari upplýsingum um fyrirkomulag athafnanna.
Starfsfólk Háskólans verður enn fremur á staðnum á brautskráningunni og leiðbeinir kandídötum um sætaskipan.
Leiðbeiningar fyrir streymi og svör við algengum spurningum
1. Get ég horft á viðburðinn í snjallsímanum mínum eða spjaldtölvu?
- Þú getur horft á streymið í vafra í snjallsíma eða spjaldtölvu.
2. Get ég notað Chromecast eða Airplay?
- Já, það birtist lítill “Cast” hnappur neðst í spilaranum sem þú smellir á til að senda strauminn í sjónvarpið þitt. Skoðaðu leiðbeiningarnar sem fylgdu þínu tæki.
3. Verður viðburðurinn aðgengilegur eftir að honum lýkur?
- Hægt verður að horfa á viðburðinn aftur að honum loknum á þessari vefslóð og eða á YouTube rás Háskóla Íslands.
4. Get ég horft á viðburðinn í gegnum Apple TV?
- Þú getur notað tækni á borð við AirPlay til að tengja t.d. síma eða tölvu við Apple TV.
5. Streymið mitt höktir, hvað er til ráða?
- Prófaðu að nota annað tæki, t.d. snjallsíma.
- Notaður Chrome vafrann eða Safari.
- Skiptu yfir í 4G, það virkar oft betur en WiFi, þó að nettenging sé hröð.
Brautskráning kandídata í grunn- og framhaldsnámi frá Háskóla Íslands fer fram í Frjálsíþróttahöllinni í Laugardal (nýju Laugardalshöllinni) laugardaginn 25. júní.
![Vorbrautskráning Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/6qbx2.jpg?itok=z0Z3mFzD)