NERA Menntaráðstefna
![NERA Menntaráðstefna - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_1920_KRI_torg_xx.jpg?itok=zMuw8RvF)
Stakkahlíð / Háteigsvegur
og Tækniskólanum.
Menntun og þátttaka á óvissutímum
Stærsta menntaráðstefna á Norðurlöndum haldin á Íslandi
Dagana 1. – 3. júní sækja tæplega 900 manns menntaráðstefnuna NERA 2022 á Íslandi.
Menntavísindasvið Háskóla Íslands heldur ráðstefnuna í samstarfi við samtökin Nordic Educational Research Association en yfirskrift ráðstefnunnar í ár er: Menntun og þátttaka á óvissutímum.
Á ráðstefnunni verður fjallað um rannsóknir um uppeldi og kennslumál en yfir 700 fræðafólk í menntavísindum halda erindi um stöðu menntunar á óvissutímum og í kjölfar heimsfaraldurs. Flestir ráðstefnugestir koma frá háskólum á Norðurlöndum en einnig hvaðan æva úr heimunum, sem dæmi eru þátttakendur frá England, Hollandi, Japan og Kína. Þrír aðalfyrirlesarar ráðstefnunnar eru:
Unn-Doris K. Bæck, prófessor við Arctic University í Tromsø í Noregi. Hún flytur erindið Education, togetherness and robust community in precarious times. Dennis Francis, prófessor við University of Stellenbosch í Suður-Afríku flytur erindið Precarious bodies, space & education. Guy Standing, prófessor við University of London flytur erindið Recovering the Soul of Education.
Um Nera
NERA eru samtök rannsakenda á sviði menntamála á Norðurlöndum. Samtökin var stofnuð árið 1972 og fagna samtökin 50 ára afmæli í ár. Ár hvert stendur NERA fyrir ráðstefnu á Norðurlöndum og í ár var komið að því að halda ráðstefnuna á Íslandi. Ráðstefnan fer fram í húsnæði Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Stakkahlíð og í Tækniskólanum.
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna má nálgast hér: https://nera.hi.is/
NERA Conference.
![NERA Menntaráðstefna](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/ggpwp.jpg?itok=o_U0aI60)