Þverfræðilegt samstarf til að bæta þjónustu við fatlaðar konur
![Þverfræðilegt samstarf til að bæta þjónustu við fatlaðar konur - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920__XP20198.jpg?itok=uueC1wks)
Zoom
Þverfræðilegt samstarf til að bæta þjónustu við fatlaðar konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi
Fyrirlesari: Fredinah Namatovu, Umeå University
Stúlkur og konur með fötlun eru í meiri mæli en drengir þolendur kynbundins ofbeldis um allan heim. Tímanleg og markviss viðbrögð geta komið í veg fyrir frekara ofbeldi og dauðsföll af völdum þess en einnig stuðlað að líkamlegum og sálrænum bata í kjölfar slíkrar reynslu. Í fyrirlestrinum verða niðurstöður eigindlegrar rannsóknar í Svíþjóð með fötluðum konum og aðilum sem veita aðstoð í kjölfar kynbundins ofbeldis. Þær benda á mikilvægi þess að efla samstarf meðal þeirra sem veita slíka þjónustu. Aftur á móti bentu bæði fatlaðar konur og veitendur þjónustu við þær á margvíslegar hindranir fyrir gott samstarf í þjónustu við þolendur kynbyndins ofbeldis og komu meðal annars fram með tillögur um á hvern hátt hægt sé að bæta samvinnu þeirra þvert á stofnanir.
Forskráning er nauðsynleg og án kostnaðar hér.
Norrænar málstofur um hnattræna heilsu (Nordic Global Health Talks)
Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði kl. 13:00 GMT getur þú farið inn á rafræna málstofu sem er skipulögð af norrænum háskólum þar sem hnattræn heilsa er til umræðu. Málstofurnar eru á Zoom og aðgangur er ókeypis og frjáls öllum sem hafa áhuga á fræðigreininni og rannsóknum á því sviði við norræna háskóla. Upplýsingar um málstofurnar má finna hér.
Hver málstofa er um 45 mín, þ.e. 20-30 mín erindi og svo spurningar og umræður.
Þverfræðilegt samstarf til að bæta þjónustu við fatlaðar konur sem hafa orðið fyrir kynbundnu ofbeldi
![Þverfræðilegt samstarf til að bæta þjónustu við fatlaðar konur](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/4d4rd.jpg?itok=LcxUGKzX)