Femínismi og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi
![Femínismi og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi - á vefsíðu Háskóla Íslands](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/efsta_mynd___vi_bur_um/public/stjori/bakgrunnsmyndir2/1920_KRI_HI_adalbygging_170810_002.jpg?itok=p91sXwWb)
Oddi
Stofa 101
Breytingar hafa átt sér stað í sílensku samfélagi undanfarin misseri. Samfélagsbreytingarnar hafa verið leiddar áfram af femínískum aktívistum og snúa meðal annars að baráttu kvenna fyrir umráðarétti yfir eigin líkama.
Á málþinginu verður fjallað um femínisma og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi.
Amaya Pavez Lizarraga prófessor í lýðheilsuvísindum við Læknadeild USACH og umsjónarkona diplómanáms í kynjasamþættingu, Cecilia Baeza Correa kennari í diplómanámi um kynjasamþættingu við USACH og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir sérlegur ráðgjafi á skrifstofu Kvenréttindafélags Íslands og fyrrum framkvæmdastýra flytja fyrirlestra á málþinginu.
Auk fyrirlesara taka þátt í pallborði Hólmfríður Garðarsdóttir prófessor í spænsku með áherslu á bókmenntir og menningu Rómönsku Ameríku og Þorgerður J. Einarsdóttir prófessor í kynjafræði.
Fundarstýrur eru Finnborg S. Steinþórsdóttir nýdoktor í kynjafræði og Gyða Margrét Pétursdóttir prófessor í kynjafræði
Amaya Pavez Lizarraga prófessor í lýðheilsuvísindum við Læknadeild USACH og umsjónarkona diplómanáms í kynjasamþættingu, Cecilia Baeza Correa kennari í diplómanámi um kynjasamþættingu við USACH og Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir sérlegur ráðgjafi á skrifstofu Kvenréttindafélags Íslands og fyrrum framkvæmdastýra flytja fyrirlestra á málþinginu.
![Femínismi og kynjafræði sem hreyfiafl samfélagsbreytinga í Síle og á Íslandi](https://www.hi.is/sites/default/files/styles/mynd___kassa_fyrir_fr_ttir_/public/vidburdir/wxk3g.jpg?itok=F5JjCXNL)